spot_img
HomeFréttirJeb Ivey: Vörnin í fyrirrúmi

Jeb Ivey: Vörnin í fyrirrúmi

 14:41

{mosimage}

 

 

Leikstjórnandinn Jeb Ivey hefur gert 19,5 stig að meðaltali í leik fyrir Njarðvíkinga í vetur en hann segir að sínir menn hafi beðið spenntir eftir kvöldinu í kvöld alveg síðan deildarkeppninni lauk. Jeb segir ennfremur að Njarðvíkingar séu klárir í verkefnið og að vörnin verði í fyrrúmi. Fyrsti leikur Njarðvíkinga og Hamars/Selfoss í 8-liða úrslitum Iceland Express deildarinnar hefst kl. 19:15 í kvöld.

 

,,Ég tel að Hamar/Selfoss ættu ekki að geta hægt á okkar leik því við getum spilað bæði hægan leik og hraðann og ég hef því ekki áhyggjur af leikstílnum sem mun ráð för í kvöld,” sagði Jeb í samtali við Víkurfréttir. ,,Við ætlum okkur bara að spila góða vörn í kvöld og það er aðalmálið.”

 

,,Við stefnum fastlega að því að klára þessa rimmu í tveimur leikjum og viljum sjá sem flesta áhorfendur á leiknum í kvöld,” sagði Jeb sem fannst úrslitakeppnin fara vel af stað og það kom honum ekki á óvart að ÍR hefði lagt KR að velli í gær. ,,ÍR var að spila vel og þeir litu betur út sem lið inni á vellinum en KR gerði,” sagði Jeb.

 

Njarðvík-Hamar/Selfoss

Ljónagryfjan í Njarðvík kl. 19:15 í kvöld

 

www.vf.is

Fréttir
- Auglýsing -