Stigahæstur í liði Keflavíkur í hálfleik var Jarryd Cole með 20 stig en næstir voru það Charlie Parker með 9 stig og Magnús Gunnarsson með 6 stig. Hjá Fjölni var Jón Sverrisson stigahæstur með 15 stig en næstir voru Nathan Walkup með 10 stig og Calvin O’Neal með 5 stig.
Fjölnismenn freistuðu þess að pressa á Keflvíkinga í þriðja leikhluta sem reyndist þeim þó ekki mjög vel. Keflvíkingar skoruðu 20 stig á heimamenn á fyrstu 7 mínútum leikhlutans og munurinn á liðunum var 25 stig, 50-75. Fjölnismönnum tókst lítið að rétta sinn hlut á lokamínútum leikhlutans og þegar einn leikhluti var eftir munaði 24 stigum, 58-82.
Fjölni tókst að minnka muninn á fyrstu mínútum fjórða leikhluta og munurinn var kominn niður í 17 stig þegar rúmar þrjár mínútur voru liðnar, 67-84. Fjölnir hafði þá skorað 9 stig gegn fyrstu 2 stigum Keflavíkur. Þessi góði kafli heimamanna endist þó ekki nógu lengi og Keflvíkingar hleyptu þeim ekki nær. Yngri leikmenn fengu að spreyta sig á lokakaflanum hjá báðum liðum og úrslitin ráðin. Keflavík hafði á endanum 19 stiga sigur, 83-102.
Mynd: [email protected]
Umfjöllun: [email protected]