Keflavík og Valur gerðu jafntefli, 80–80, í æfingaleik meistaraflokks karla í gærkvöldi þar sem liðin ákváðu að framlengja ekki að venjulegum leiktíma loknum.
Jafnræði var með liðunum allan leikinn en staðan í leikhléum var 24–24 eftir fyrsta leikhluta og 48–37 fyrir Keflavík í hálfleik (24–13 í öðrum leikhluta). Valsmenn sóttu í sig veðrið í síðari hálfleik (16–23 og 16–20) og tryggðu sér jafntefli á lokasprettinum.
Í liði Keflavíkur var Bragi stigahæstur með 28 stig, Jaka skoraði 16 og Panos bætti við 10 stigum. Hjá Val var Kári drjúgastur með 23 stig, Kristófer skoraði 15 og Atli setti 13 stig.




