HomeFréttirJ.R. Smith áfram hjá New York

J.R. Smith áfram hjá New York

Stuðningsmenn New York geta glaðst en J.R. Smith hefur ákveðið að halda sig í stóra eplinu og mun spila með Knicks á næsta tímabil. Smith var einn allra besti sjötti maðurinn í deildinni á síðasta tímabili og átti stóran þátt í sigri New York á Atlantic deildinni í fyrsta skipti í 19 ár.
 
Smith mun skrifa undir fjögra ára samning við New York um leið og tækifæri gefst eða eftir 10. júlí þegar nýtt fjárhagstímabil byrjar í NBA deildinni.
 
Fréttir
- Auglýsing -