HomeFréttirÍslenskur tvíhöfði gegn Slóvökum

Íslenskur tvíhöfði gegn Slóvökum

Tvö íslensk landslið mæta Slóvakíu í dag þegar U18 ára liðið og A-landsliðið reima á sig skóna ytra. A-landsliðið mætir Slóvökum í sínu heimalandi en U18 ára liðið mætir Slóvökum í Bosníu þar sem keppni í B-deild Evrópukeppninnar fer fram.
U18 strákarnir leika gegn Slóvakíu kl. 11.30 að íslenskum tíma í Bosníu en landslið Slóvakíu tekur á móti Íslandi í Slóvakíu í undankeppni EuroBasket 2013 og hefst leikurinn kl. 18.00 úti eða kl. 16.00 að íslenskum tíma.
 
Hjá 18 ára liðinu er um að ræða krossspil og sigurvegarinn spilar um 13.-14. sætið við sigurvegarann úr viðureign Svía og Rúmena. Tapliðin mætast um 15.-16. sætið, en allir leikir um sæti fara fram á sunnudag.
  
Hér er svo staðan í A-riðli karlalandsliðsins
  Team P W/L F/A Pts
1. Estonia 1 1/0 95/74 2
2. Serbia 1 1/0 91/78 2
3. Montenegro 1 1/0 75/69 2
4. Israel 1 0/1 69/75 1
5. Iceland 1 0/1 78/91 1
6. Slovak Republic 1 0/1 74/95 1
  
Fréttir
- Auglýsing -