Ísland og Rúmenía áttust við í kvöld í forkeppni EM 2015. Hvorugt liðið gat með sigri komist áfram úr riðlinum en íslenska liðið átti séns á að enda keppni í öðru sæti riðilsins og lyfta sér með því hærra í styrkleikaröðinni fyrir undankeppni EM sem fer fram næsta sumar.
Byrjunarlið Íslands:
Haukur Helgi Pálsson
Jakob Örn Sigurðsson
Hlynur Bæringsson
Jón Arnar Stefánsson
Pavel Ermolinskji
Byrjunarlið Rúmeníu:
Titus Nicoara
Adrian Gutoaia
Adrian Tudor
Mihai Silvasan
Rares Mandach
Rúmenar smelltu niður fyrstu körfu leiksins en íslensku strákarnir voru ekki lengi að svara og náði liðið flottri byrjun og leiddu með níu stigum um miðjan leikhlutann. Jón Arnór fór snemma af velli með tvær villur og eftir það byrjaði Peter Öqvist, þjálfari Íslands, að rúlla á hópnum og alls fóru 11 íslenskir leikmenn inn á völlinn í fyrsta leikhluta. Íslensku leikmennirnir voru duglegir að keyra í bakið á hávöxnu liði Rúmena og leiddu 22-13 eftir leikhlutann og áttu gestirnir í mesta basli með snögga Íslendinga.
Ísland slakaði örlítið á í upphafi annars leikhluta og Rúmenar gengu á lagið. Aðgerðir þeirra gengu upp og minnkuðu þeir muninn í tvö stig 26-24. Bares Mandache fór útaf með sína þriðju villu snemma í leikhlutanum en Mandache hefur verið stigahæsti leikmaður Rúmena það sem af er móti. Á svipuðum tíma fór Jón Arnór útaf með sína þriðju villu og sátu þeir félagar á bekknum út leikhlutann.
Rúmenar jöfnuðu leikinn þegar tvær mínútur voru eftir 34-34 en Ísland leiddi með fjórum stigum í hálfleik 40-36. Undir lok leiks kom Martin Hermannsson inn á og komu því allir leikmenn Íslands við sögu í fyrri hálfleik.
Jakob Sigurðarson var stigahæstur í liði Íslendinga með 15 stig og Haukur Helgi Pálsson var með 9 stig.
Hjá Rúmenum var Titus Nicoara með 10 stig í hálfleik og fjögur fráköst og Adrian Tudor var honum næstur með 9 stig.
Þriðji leikhluti var nokkuð jafn út hann allan. Ísland náði fínni byrjun en Rúmenar voru aldrei langt undan. Íslensku leikmennirnir gerðu sig seka um nokkur ódýr mistök og töpuðu boltanum sökum þess.
Í hvert skipti sem Ísland náði að keyra upp muninn svöruðu Rúmenar og svo fór að aðeins munaði einu stigi á liðunum fyrir loka leikhlutann eftir að íslenska liði hafði mest náð átta stiga forystu. 61 -60 endaði leikhlutinn.
Rúmenar fengu tækifæri til að komast yfir í fyrsta skiptið síðan í upphafi leiks með tveimur vítaskotum í upphafi fjórða leikhluta. Andrei Capusan fór á línuna en setti einungis niður annað vítið. Íslendingar fóru í sókn og Logi Gunnarsson smellti niður rándýrri þriggja stiga körfu og jók muninn í þrjú stig fyrir Ísland. Aftur minnkuðu gestirnir muninn og var leikurinn hníf jafn út leikhlutann eða þangað til að Jón Arnór kom með mikilvæga körfu þegar innan við mínúta var eftir og jók muninn í fimm stig. Rúmenar fóru í sókn og reif Pavel niður frákast eftir að skot Rúmena hafði geigað. Ísland brunaði í hraðaupphlaup og var brotið á Hauki Helga sem fór á línuna og setti niður bæði skot sín.
Rúmenar minnkuðu muninn aftur í þrjú stig og voru snöggir að brjóta. Pavel fór á línuna og klikkaði úr báðum skotum sínum en Hlynur Bæringsson, sem hefur átt betri daga, reif niður frákastið. Liðin skiptust á körfum undir lokin og endaði leikurinn með sigri Íslendinga 77-71.
Með sigrinum á Ísland möguleika á að fara upp í styrkleikaröðinni fyrir undankeppni EM 2015 sem fer fram á næsta tímabili.
Jakob Sigurðarson var stigahæstur Íslendinga með 23 stig og Honum næstur var Haukur Helgi Pálsson með 14 stig, 5 fráköst og 5 stoðsendingar. Hlynur Bæringsson átti ekki góðan dag í sókninni en eins og ávallt barðist hann eins og ljón og reif niður 13 fráköst.
Hjá Rúmeníu var Titus Nicoara stighæstur með 16 stig og 11 fráköst og honum næstur var Adrian Tudor með 13 stig og 6 stoðsendingar.
Mynd: Karl West




