Íslandsmótið í Stinger fer fram í Hertz Hellinum þann 30. september næstkomandi. Mótið hefst kl. 15:00 og er þátttökugjald litlar 500 kr. Sigurvegarinn hlýtur að launum forláta farandbikar og þá verður hann einnig leystur út með góðum snæðingi hjá Nings, Gatoradedrykkjum í tuga tali og að sjálfsögðu hinum heimsfrægu Karfan.is ennisböndum en þau hafa vísindalega sannað að skotnýting manna batni um amk. 2% sé það notað í kappleikjum.
Í fyrra tóku 30 manns þátt þegar Íslandsmótið í Stinger var haldið í fyrsta sinn. Öflugar kanónur hafa boðað komu sína á borð við Sveinbjörn Claessen og Eric Palm. Ekkert hefur heyrst í fallbyssunum Guðjóni Skúlasyni, Magnúsi Þór Gunnarssyni, Teiti Örlygssyni og fleiri landsþekktum skyttum sem ættu auðvitað ekki að láta þetta mót fram hjá sér fara. Hér með er skorað á þessa kappa og aðra sem þykjast skotvissir að mæta og sanna í eitt skipti fyrir öll hver sé maðurinn!





