Á morgun fær Íslenska landsliðið Slóvakíu í heimsókn í Laugardalshöllina en leikurinn hefst klukkan 15:45. Ísland og Slóvakía verma tvö neðstu sæti riðilsins með 6 og 7 stig, Ísland stiginu ofar. Fyrri leikur liðanna fór fram í Slóvakíu þar sem Ísland hafði betur, 75-81. Jón Arnór Stefánsson fór þar á kostum og skoraði 28 stig en liðið spilaði þar vel sem heild og vonandi tekst þeim að endurtaka leikinn á morgun.
Helsta vopn Slóvakíu er Anton Gavel sem skoraði 31 stig í fyrri viðureign liðanna en hann er næst stigahæsti leikmaður keppninnar hingað til með 24 stig á leik að meðaltali.
Peter Öqvist sagði við heimasíðu FIBA Europe eftir fyrri leikinn að lykillinn að sigrinum hefði verið varnarvinnan sem liðið hefði skilað vel í 40 mínútur.
Við hvetjum ykkur öll til þess að mæta í höllina og styðja Íslenska liðið til sigurs.
Áfram Ísland
mynd: [email protected]






