Viktor Jónas Lúðvíksson meiddist illa á öxl og er óttast að hann hafi farið úr axlarlið undir lok leiks KFG og Breiðabliks í 1. deild karla í kvöld. Frá þessu er greint á Vísi. Viktor hafði farið á kostum í sigri KFG og skorað 31 stig ásamt því að taka 13 fráköst.
Þetta er mikið áfall fyrir Stjörnuna, en yngri landsliða leikmaðurinn hefur verið í lykilhlutverki í Bónus deildinni í vetur með 9,0 stig og 6,3 fráköst að meðaltali í leik. Fyrir eru Garðbæingar án Orra Gunnarssonar vegna krossbandsslita og Ægir Þór Steinarsson er nýkominn til baka eftir meiðsli.




