HomeNeðri deildir1. deild karlaÍA og Haukar ein ósigruð á toppnum eftir fjöruga umferð í 1....

ÍA og Haukar ein ósigruð á toppnum eftir fjöruga umferð í 1. deild karla

Fjórðu umferð 1. deildar karla lauk í kvöld með sex leikjum þar sem Skagamenn og Haukar tryggðu sér toppsætin tvö með fullt hús stiga, á meðan Þór Þorlákshöfn mátti þola sitt fyrsta tap á tímabilinu.  

Stærsti leikur kvöldsins fór fram í Þorlákshöfn þar sem ÍA sótti dýrmætan 104–94 útisigur gegn Þór Þ. í hreinum toppslag tveggja taplausra liða fyrir leikinn. Skagamenn eru þar með á toppi deildarinnar ásamt Haukum, sem lögðu botnlið Skallagríms 101–93 á Ásvöllum.  

KFG vann sterkan útisigur á Breiðabliki í Smáranum, 94–82, og lyfti sér í 6 stig í efri hluta deildarinnar. Í Hveragerði höfðu heimamenn í Hamri betur gegn KV í háhraðaleik, 108–97, og Selfoss sótti sömuleiðis tvö stig í Stykkishólm með 104–92 sigri gegn Snæfelli. Þá kræktu Þórsarar frá Akureyri í sinn fyrsta deildarsigur í vetur með 92–87 útisigri gegn Fjölni í Grafarvogi.  

Skallagrímur og Snæfell sitja enn á botni deildarinnar án stiga eftir fjóra leiki.  

Úrslit kvöldsins í 1. deild karla:

 Breiðablik – KFG 82–94  

 Fjölnir – Þór Akureyri 87–92  

 Hamar – KV 108–97  

 Haukar – Skallagrímur 101–93  

 Snæfell – Selfoss 92–104  

 Þór Þorlákshöfn – ÍA 94–104

Fréttir
- Auglýsing -