HomeFréttirÍsland rauf hundrað stiga múrinn í öruggum sigri gegn Sviss – Einir...

Ísland rauf hundrað stiga múrinn í öruggum sigri gegn Sviss – Einir efstir í riðlinum

Íslenska kvennalandsliðið vann glæsilegan átján stiga sigur á Sviss, 100–82, í A-riðli undankeppni EuroBasket 2029 í Íþróttamiðstöðinni á Ásvöllum í Hafnarfirði í dag. Með sigrinum hefur Ísland unnið báða fyrstu leiki sína í keppninni og situr nú eitt og taplaust á toppi riðilsins.

Ísland var með yfirhöndina frá upphafi til enda og leiddi með sex stigum eftir fyrsta leikhluta, 25–19. Heimakonur bættu verulega í í öðrum leikhluta og leiddu með fimmtán stigum í hálfleik, 55–40. Sviss náði að klóra aðeins í bakkann í þriðja leikhluta (19–20) en íslenska liðið kláraði leikinn af miklum krafti í fjórða leikhluta, 26–22, og rauf hundrað stiga múrinn.

Þriðji og síðasti leikur Íslands í þessum landsliðsglugga fer fram næstkomandi þriðjudag í Ólafssal gegn Aserbaídsjan, sem hefur tapað tveimur fyrstu leikjum sínum í riðlinum. Miðasala á leikinn fer fram í Stubb-appinu.

Frekari umfjöllun og viðtöl úr leiknum eru á leiðinni inn á vefinn.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -