Alls eru fjórir leikir á dagskrá í 2. og 3. deild karla í körfuknattleik í dag, þrír í A-riðli 2. deildar og einn í 3. deildinni.
Veislan hefst klukkan 14:00 í 2. deild karla þegar Aþena/Leiknir R. tekur á móti Selfossi u, en bæði lið eru með fjögur stig um miðjan A-riðil. Klukkan 15:00 fær Afturelding, sem er í þriðja sæti með sex stig, botnlið Reykdæla í heimsókn sem er enn án stiga eftir fyrstu fimm leiki sína. Þriðji og síðasti leikur dagsins í 2. deildinni hefst klukkan 16:30 þegar KR b (fjögur stig) tekur á móti Mána sem situr í fjórða sæti með sex stig.
Einn leikur er á dagskrá í 3. deild karla klukkan 16:30 þegar Hamar b og Valur b mætast, en bæði lið eru enn í leit að sínum fyrstu stigum á tímabilinu.
Leikir dagsins:
2. deild karla
- Aþena/Leiknir R. – Selfoss u kl. 14:00
- Afturelding – Reykdælir kl. 15:00
- KR b – Máni kl. 16:30
3. deild karla
- Hamar b – Valur b kl. 16:30




