spot_img
HomeFréttirÍsland í 25. sæti Evrópulista FIBA – Ofar en báðir andstæðingar búbblunnar...

Ísland í 25. sæti Evrópulista FIBA – Ofar en báðir andstæðingar búbblunnar í Kósovó

Framundan dagana 18.-20. febrúar er landsliðsgluggi karlalandsliðsins og verður líkt og hjá konunum í síðustu viku leikið í sóttvarnar „bubblu“ á vegum FIBA og fer hún fram í Pristina í Kósovó hjá okkar liði. Craig Pedersen, landsliðsþjálfari, hefur valið liðið sitt fyrir leikina tvo en þá mætir Ísland fyrst Slóvakíu þann 18. febrúar og svo Lúxemborg þann 20. nóvember.

Hérna er hægt að sjá lið Íslands

Til þessa í riðlinum hefur Ísland unnið þrjá leiki og tapað einum í riðli B. Eini tapleikur þeirra til þessa kom gegn Kósovó í febrúar á síðasta ári.

Á síðasta heimslista FIBA var Ísland 46. besta lið í heiminum, en það 25. besta í Evrópu. Mótherjar Íslands úti í Slóvakíu voru öllu neðar. Lúxemborg er samkvæmt listanum 74. besta lið í heiminum og það 38. besta í Evrópu. Slóvakía aðeins ofar, það 66. besta í ehiminum, en það 36. besta í Evrópu.

Fréttir
- Auglýsing -