spot_img
HomeFréttirÍR bestar í vörn og Tindastóll í sókn - Ármann spilar hraðast

ÍR bestar í vörn og Tindastóll í sókn – Ármann spilar hraðast

Körfuboltatölfræðingurinn Hörður Tulinius hefur reiknað út stöðu liða fyrstu deildar kvenna eftir fyrstu umferðirnar útfrá því sem í daglegu tali þekkist sem tölfræði fyrir lengra komna (e. advanced statistics) og þekkist víða í hinum stóra heimi körfubolta.

Hörður Tulinius / twitter.com/HordurTulinius

Samkvæmt greiningunni er ÍR besta lið deildarinnar með 24,4 í Net Rating. Næstar á eftir þeim kemur Þór Akureyri með 22,9, og Ármann í því þriðja með 19,7. Versta lið deildarinnar er Vestri með -24,2 í Net Rating, en þar undan er Stjarnan með -19,1 og Hamar/Þór þriðja versta liðið með -19,0.

Á sóknarhelmingi vallarins er Tindastóll besta liðið, með 4,5 í einkunn, Ármann fyrir aftan þær með 5,0 og Þór Akureyri með þriðju bestu sóknina, 5,1. Versta sókn deildarinnar er hjá Vestra, en einkunn þeirra er 7,6 og næst versta sóknin er hjá ÍR, 7,2.

Á varnarhelmingi vallarins ber ÍR svo höfuð og herðar yfir önnur lið, með 2,7 í einkunn, en versta vörnin hingað til hefur verið hjá Hamar/Þór, 9,9.

Þá er þarna einnig að finna útreikninga fyrir hraða liðanna. Samkvæmt útreikningum leikur Ármann hraðast, 85,4 sóknir í leik á meðan að fæstar sóknir í leik eru hjá Tindastól, 76,5.

Hörður Tulinius / twitter.com/HordurTulinius

Fyrir frekari útskýringar á flokkum fjórþáttagreiningarinnar er hægt að lesa hér

Fréttir
- Auglýsing -