spot_img
HomeNeðri deildir1. deild kvennaÍR bætti sig um 109 stig milli leikja gegn Aþenu

ÍR bætti sig um 109 stig milli leikja gegn Aþenu

Tveir leikir fóru fram í fyrstu deild kvenna í dag.

Í Hveragerði hafði Hamar/Þór betur gegn Tindastóli og héldu þær þar með lífi í úrslitakeppnisvonum sínum, 80-76.

Í seinni leik kvöldsins hafði Aþena betur gegn grönnum sínum í ÍR í Skógarselinu. Þó ÍR liðið hafi tapað leiknum, töpuðu þær honum þó ekki jafn stórt og síðast þegar þessi lið áttust við, en fyrir jólin var munurinn 162 stig. Í kvöld var hann aðeins 53 stig, 71-124 og því má segja að ÍR hafi bætt sig um 109 stig á milli leikja gegn grönnum sínum í Aþenu.

Staðan í deildinni

Tölfræði leikja

Úrslit dagsins

Fyrsta deild kvenna

Hamar/Þór 80 – 76 Tindastóll

ÍR 71 – 124 Aþena

Fréttir
- Auglýsing -