HomeFréttirInnlit hjá liðunum í Domino´s deild kvenna: Grindavík

Innlit hjá liðunum í Domino´s deild kvenna: Grindavík

Grindvíkingar eru komnir í úrvalsdeild kvenna á nýjan leik eftir veru í 1. deildinni. Bragi Hinrik Magnússon tók við gulum í sumar og stendur hér skil á svörum í innlitinu til Grindavíkur.
Hvaða breytingar hafa orðið á leikmannahópnum hjá ykkur frá síðustu leiktíð?
Petrúnella, Harpa, Helga og Ólöf hafa komið inn í liðið frá því á síðasta tímabili annars ætti hópurinn að vera nokkuð svipaður.
 
Hvernig hefur undirbúningstímabilið gengið hjá ykkur?
Það hefði mátt ganga aðeins betur, ég hef ekki haft eins mikinn tíma með liðið eins og ég almennt myndi vilja og því mun undirbúningstímabilið ná aðeins inn í mót hjá okkur.
 
Hvernig leggst komandi tímabil í þig í Domino´s deildinni?
Svakalega vel. Ég held að þetta eigi eftir að verða mjög skemmtilegt í vetur. Öll liðin í deildini standa frammi fyrir öðruvísi ákvörðunum og vandamálum en í fyrra og breyttar reglur þýða að þetta er ekki bara tækifæri fyrir leikmenn heldur líka fyrir liðin að uppskera eins og þau hafa sáð síðustu ár í yngri flokkum. Ég tel að komandi tímabil verði mjög áhugavert.
 
Hvaða lið telur þú að verði sterkust?
Valur, Keflavík, KR og Snæfell eru allt mjög vel mönnuð lið og að sjálfsögðu tel ég að við eigum eftir að geta strítt þeim öllum. En ég hugsa að þetta komi líka til með að sveigjast aðeins til og frá eftir útlendingunum og hin liðin Fjölnir, Haukar og Njarðvík eiga öll eftir að eiga sína sigra. Jöfn og skemmtileg deild semsagt.
 
Hvaða leikmönnum ert þú spenntur fyrir, hverjar stíga upp?
Ég get ekki bent á eina fram yfir aðra en ég er klárlega með hæfileikaríka leikmenn innanborðs og efnilegar ungar stelpur þannig að ég er spenntur fyrir þeim öllum sem leikmenn, hlakka til að vinna með þeim öllum og hlakka til tímabilsins
 
Keppni í Domino´s deild kvenna hefst 3. október næstkomandi.
 
Fyrsta umferð:
 
KR-Grindavík
Haukar-Keflavík
Fjölnir-Njarðvík
Valur-Snæfell
 
Fréttir
- Auglýsing -