Ágúst Jensson er nýr þjálfari Fjölniskvenna og sér um svörin í þessu innliti okkar en hann tók við liðinu í sumar. Fjölniskonur björguðu sér frá falli með naumindum á síðustu leiktíð og stríddu stóru liðunum stöku sinnum, ætla þær ofar í töfluna þetta árið? Gular fengu myndarlega viðbót í hópinn í sumar þegar Fanney Lind gerðist Fjölniskona og mun mikið á henni mæða þessa leiktíðina.
Hvaða breytingar hafa orðið á leikmannahópnum hjá ykkur frá síðustu leiktíð?
Það hafa orðið nokkrar breytingar á okkar hóp frá því í fyrra. Fanney Lind og Hrund hafa bæst við og svo erum við með nýjan kana sem heitir Porsha Porter.
Hvernig hefur undirbúningstímabilið gengið hjá ykkur?
Það hefur gengið þokkalega. Ég fékk ekki allan hópinn saman til æfinga fyrr en um síðustu mánaðarmót og svo er það nú þannig að með nýjum þjálfara koma nýjar áherslur þannig að við erum bara að slípa okkur saman. Þeir leikir sem við höfum spilað hafa verið svona upp og ofan, en erum á réttri leið. Ætlum okkur að nýta tímann vel fram að fyrsta leik í Dominos deildinni.
Hvernig leggst komandi tímabil í þig í Domino´s deildinni?
Tímabilið leggst mjög vel í hópinn. Ég er með góðan hóp af stelpum sem eru til í að leggja mikið á sig og við ætlum okkur ekki að vera í fallbaráttu líkt og Fjölnir hefur verið í undanfarin ár. Ég held að það hafi verið mikið framfaraskref fyrir kvennakörfuna að leyfa bara einn kana. Nú þurfa íslensku stelpurnar að stíga upp og axla meiri ábyrgð sem á bara eftir að gera þær betri. Ég held að deildin gæti verið jafnari en hún hefur verið undanfarin ár.
Hvaða lið telur þú að verði sterkust?
Snæfell, Keflavík, Valur og Haukar eru að mínu mati sterkustu liðin og hljóta að gera kröfu um titil. Snæfell er kannski ekki með sömu breiddina og hin liðin en þær fara langt á mjög sterku byrjunarliði.
Hvaða leikmönnum ert þú spenntur fyrir, hverjar stíga upp?
Ég er svo nýbyrjaður í þessu þannig að ég hef nú lítið spáð í það. Ég hef þó fylgst vel með kvennaboltanum í gegnum tíðina. Haukar og Keflavík eiga fullt af ungum og flottum stelpum sem eiga eftir að láta mikið að sér kveða. Annars er ég nú bara spennastur fyrir mínu liði. Þær munu flestar fá aukna ábyrgð núna í vetur og vona ég svo sannarlega að þær stigi upp og standi undir þeim væntingum sem gerðar eru til þeirra.
Keppni í Domino´s deild kvenna hefst 3. október næstkomandi.
Fyrsta umferð:
KR-Grindavík
Haukar-Keflavík
Fjölnir-Njarðvík
Valur-Snæfell
Innlit hjá liðunum í Domino´s deild kvenna: Valur
Innlit hjá liðunum í Domino´s deild kvenna: KR
Innlit hjá liðunum í Domino´s deild kvenna: Keflavík
Innlit hjá liðunum í Domino´s deild kvenna: Snæfell
Innlit hjá liðunum í Domino´s deild kvenna: Haukar
Innlit hjá liðunum í Domino´s deild kvenna: Njarðvík
Innlit hjá liðunum í Domino´s deild kvenna: KR
Innlit hjá liðunum í Domino´s deild kvenna: Keflavík
Innlit hjá liðunum í Domino´s deild kvenna: Snæfell
Innlit hjá liðunum í Domino´s deild kvenna: Haukar
Innlit hjá liðunum í Domino´s deild kvenna: Njarðvík





