Bárður Eyþórsson stýrði Tindastól inn í 7. sæti úrvalsdeildarinnar á síðustu leiktíð þar sem liðið datt út í fyrstu umferð úrslitakeppninnar gegn KR. Hvað gera Stólarnir í ár? Bárður situr fyrir svörum í innliti okkar í Síkið í Skagafirði.
Hvaða breytingar hafa orðið á leikmannahópnum hjá ykkur frá síðustu leiktíð?
Það hefur ekki verið mikil breyting á hópnum hjá okkur. Pálmi Geir er að mennta sig í höfuðborginni og fór í Breiðablik. Við höfum fengið Sigtrygg Arnar Björnsson, Ragnar Steinsson og Þorberg Ólafsson aftur heim en Tobbi spilaði með Þór A. á síðustu leiktíð . Svo eru nokkrir strákar úr yngri flokkum félagsins að koma upp.
Hvernig hefur undirbúningstímabilið gengið hjá ykkur?
Undirbúningurinn hefur gengið ágætlega. Yngri strákarnir koma flestir vel undan sumri. Og þeir sérstaklega hafa verið duglegir við æfingar frá því í ágúst. Hefði vilja sjá nokkra eldri og reyndari menn vinna meira og betur í sínum málum í sumar en þeir gerðu. Við höfum því miður ekki fengið mikið af æfingaleikjum fyrir tímabilið en höfum reynt að nýta þá sem við höfum fengið vel. Kanarnir eru nýkomnir til landsins og eru þeir bara rétt að kynnast Skagafirðinum.
Hvernig leggst komandi tímabil í þig í Domino´s deildinni?
Tímabilið leggst bara vel í mig. Tilhlökkunin og eftirvæntingin er mikil. Strákarnir eru staðráðnir að gefa sig alla í tímabilið.
Hvaða lið telur þú að verði sterkust?
Það er mjög erfitt að segja hvernig þetta kemur til með að þróast. Flest liðin hafa verið að bæta við sig mönnum og þau lið sem hafa fengið sér kana/Íslendinga verða örugglega sterk. Ég hef reyndar séð mjög lítið af liðum í haust þannig að ég á frekar erfitt með að meta styrk liðanna. Fyrirfram ættu lið eins og Grindavík, KR, Keflavík, Þór Þ. Snæfell og Stjarnan að vera sterkust. ÍR-ingar hafa styrkt sig verulega. En ég á von á spennandi og jöfnu tímabili þar sem lið verða að reita stig af hverju öðrum í allan vetur.
Hvaða leikmönnum ert þú spenntur fyrir, hverjir stíga upp?
Það eru margir ungir strákar að koma upp, og verður gaman að fylgjast með þeirra framþróun sérstaklega hjá þeim liðum sem beittu sér hvað mest fyrir 3-2 reglunni. En þessi regla ætti að gefa mönnum aukna von um spilatíma. Á Króknum erum við með ágætisblöndu af eldri og ungum ferskum löppum.
Keppni í Domino´s deild karla hefst þann 7. október og lýkur fyrstu umferðinni þann 8. október
Fyrsta umferðin
7. október
Fjölnir-KR
Tindastóll-Stjarnan
KFÍ-Skallagrímur
8. október
Keflavík-Grindavík
Snæfell-ÍR
Þór Þorlákshöfn-Njarðvík





