spot_img
HomeFréttirInnlit hjá liðunum í Domino´s deild karla: Þór Þorlákshöfn

Innlit hjá liðunum í Domino´s deild karla: Þór Þorlákshöfn

Á sínu fyrsta ári með Þór Þorlákshöfn í úrvalsdeild afrekaði Benedikt Guðmundsson það að komast í úrslitaseríuna og landa þar silfurverðlaunum. Hvað gera Þórsarar þessa leiktíðina? Eitt er víst að þeir verða illir viðureignar í Icelandic Glacial Höllinni en Benedikt sat fyrir svörum þegar við litum þar inn.
Hvaða breytingar hafa orðið á leikmannahópnum hjá ykkur frá síðustu leiktíð?
Íslenski hópurinn er nánast eins en það verða aðrir kanar.
 
Hvernig hefur undirbúningstímabilið gengið hjá ykkur?
Svona ágætlega. Eigum ennþá svolítið í land en það verður fljótt að koma þar
sem það eru litlar breytingar á hópnum. Menn hafa nýtt sumarið misjafnlega
og þeir sem nýttu það vel munu njóta góðs af því í vetur. Þorsteinn
Ragnarsson og Erlendur Stefánsson lentu í erfiðum meiðslum og óvíst hvenær
þeir koma til baka og þurfa örugglega sinn tíma að komast á gott ról.
 
Hvernig leggst komandi tímabil í þig í Domino´s deildinni?
Það er tilhlökkun í mönnum eins og alltaf á haustin. Við gerum okkur grein
fyrir að það er mikil áskorun að fylgja eftir síðasta vetri. Við munum selja
okkur dýrt eins og hingað til og setjum stefnuna á toppbaráttuna aftur. Það
er mikill áhugi í bæjarfélaginu og karfan búin að stimpla sig rækilega inn.
Þá hefur orðið mikil fjölgun iðkenda í yngri flokkum Þórs sem er frábært.
Körfuknattleikshreyfingin stækkar með fleiri iðkendum og fleira fólki sem
tekið hefur ástfóstri við okkar mögnuðu íþrótt.
 
Hvaða lið telur þú að verði sterkust?
Það verða auðvitað þessir stóru klúbbar sem eru alltaf í topp baráttu eins
og KR, Grindavík, Snæfell og Keflavík. Það eru ansi margir á því að þetta
verði ár Stjörnunar þar sem þeir séu í dauðafæri að taka þann stóra með
nýjum reglum. Við ætlum auðvitað að vera berjast í topp baráttu líka og svo
held ég að ÍR sé komið með lið sem gerir tilkall í titlabaráttu. Eins og
sést kannski á þessari upptalningu þá reikna ég með mikilli baráttu þar sem
mörg lið eiga möguleika á titlinum þetta árið, sem er flott. Fullt af góðum
liðum í ár.
 
Hvaða leikmönnum ert þú spenntur fyrir, hverjar stíga upp?
Það er of langt mál að telja upp alla þá leikmenn sem ég er spenntur fyrir.
Það er fullt af flottum leikmönnum í öllum liðum sem eru að gera góða hluti
þó svo að þeir fái kannski ekki alltaf athygli nema þegar þeir skora slatta
af stigum. Ég bíð spenntur að sjá hverjir hafa bætt sig í sumar. Það er allt
of lítill hluti leikmanna sem nýtir sumarið vel og kemur til leiks enn
öflugri en ég hlakka til að sjá hverjir hafa lagt mikið á sig í sumar,
sérstaklega af yngri kynslóðinni.
 
Keppni í Domino´s deild karla hefst þann 7. október og lýkur fyrstu umferðinni þann 8. október
 
Fyrsta umferðin
 
7. október
Fjölnir-KR
Tindastóll-Stjarnan
KFÍ-Skallagrímur
 
8. október
Keflavík-Grindavík
Snæfell-ÍR
Þór Þorlákshöfn-Njarðvík
  
Fréttir
- Auglýsing -