Sá er öllu ræður í Stykkishólmi, Ingi Þór Steinþórsson, starir nú framan í aðra leiktíð þar sem hann situr í brúnni á báðum Snæfellsskútunum. Ingi sér um svörin í þessu innliti í Hólminn en fyrir leiktíðina sameinaði hann bræðurna Stefán Karel og Ólaf Torfasyni. Væntanlega munu einhverjir bakverðir sem ekki voru duglegir í ræktinni í sumar hugsa sig tvisvar um áður en þeir reyna gegnumbrot hjá bræðrunum.
Hvaða breytingar hafa orðið á leikmannahópnum hjá ykkur frá síðustu leiktíð?
Það hafa orðið töluverðar breytingar á leikmannahópnum hjá okkur, Óskar Hjartarson fór í nám til Reykjavíkur og mun að öllum líkindum leika með Mostra í vetur. Daníel Kazmi fór einnig í nám til Reykjavíkur. Þorbergur Helgi Sæþórsson fór í kokkanám og ætlar að leika með Haukum á næsta tímabili. Snjólfur Björnsson fór til Bandaríkjanna í miðskóla og þeir Marquis Hall sem fór til Finnlands og Quincy Hankins-Cole sem fór til Frakklands koma ekki aftur. Við höfum fengið í staðinn Stefán Karel Torfason, efnilegan og flottan leikmann frá Þór Akureyri, ungir strákar hafa komið upp úr yngriflokkunum og eru að stíga sín fyrstu skref með meistaraflokki.
Hvernig hefur undirbúningstímabilið gengið hjá ykkur?
Undirbúningstímabilið er búið að vera ágætt – við höfum ekki verið nógu margir til að keyra mikið á fimm gegn fimm en Danmerkurferðin okkar var ljómandi góð og síðan erum við að pikka upp leiki hingað og þangað sem verða lokapunkturinn í okkar undirbúningi.
Hvernig leggst komandi tímabil í þig í Domino´s deildinni?
Við erum stemmdir, okkur hlakkar mikið til og við vitum að deildin verður jöfn og spennandi. Liðið mun verða líkt og önnur lið að finna taktinn svona í byrjun móts og er engin spurning að strákarnir munu leggja sig gríðarlega mikið fram til að ná góðum úrslitum.
Hvaða lið telur þú að verði sterkust?
KR-ingar eru með mjög flottan og skemmtilegan hóp, Stjarnan einnig og hafa þeir líkt og Þór Þ. og Keflavík stöðugildi sem margir vildu hafa. Ég tel hinsvegar ómögulegt að segja nokkuð um hverjir verða hvar fyrr en maður hefur fengið að sjá fullmönnuð lið í leik en það höfum við ekki náð að sjá.
Hvaða leikmönnum ert þú spenntur fyrir, hverjar stíga upp?
Það eru líkt og í fyrra margir ungir leikmenn sem eiga eftir að stíga enn frekar upp. Ég var heillaður af Elvari Már í Njarðvík í fyrra og veit ég að Martin í KR og fleiri strákar í þessum aldursflokki munu sýna sig hversu magnaðir þeir eru í vetur. Íslenskur körfubolti á fullt af flottum leikmönnum sem ég vona að eigi eftir að sýna ljós sitt í vetur. Hjá okkur í Snæfell munu reyndari menn keyra liðið áfram og mynda góða og jafna heild sem við trúum á að geri flotta hluti.
Keppni í Domino´s deild karla hefst þann 7. október og lýkur fyrstu umferðinni þann 8. október
Fyrsta umferðin
7. október
Fjölnir-KR
Tindastóll-Stjarnan
KFÍ-Skallagrímur
8. október
Keflavík-Grindavík
Snæfell-ÍR
Þór Þorlákshöfn-Njarðvík
Innlit hjá liðunum í Domino´s deild karla: Skallagrímur
Innlit hjá liðunum í Domino´s deild karla: KFÍ
Innlit hjá liðunum í Domino´s deild karla: KFÍ
