Æskuvinirnir Einar Árni Jóhannsson og Örvar Þór Kristjánsson sameinast þessa leiktíðina á ný og stýra þar Njarðvíkingum. Einar er aðalþjálfari en Örvar var ráðinn aðstoðarþjálfari eftir að hans veru í Dalhúsum lauk. Einar Árni stendur hér skil á innlitinu í Ljónagryfjuna í Njarðvík.
Hvaða breytingar hafa orðið á leikmannahópnum hjá ykkur frá síðustu leiktíð?
Það hafa orðið töluvert miklar breytingar á okkar hóp. Það eru 7 af 14 farnir frá síðasta vetri en í staðinn hafa komið nýjir menn inn, bæði annars staðar frá og úr yngri flokkunum. Kjarninn frá því í fyrra er samt til staðar fyrir utan kanana og Palla Kristins sem lagði skóna á hilluna í vor aftur en hann var okkur ómetanlegur í baráttunni í fyrra. En við fáum Friðrik Erlend inn aftur eftir árs hlé og hann kemur náttúrulega með gríðarlega reynslu inn í þetta og styrkir okkur víða á vellinum. Ágúst Orrason kom frá Breiðablik í vor og hann hefur staðið sig mjög vel í sumar og haust og við bindum miklar vonir við hann og svo fengum við Kristján Rúnar Sigurðsson heim aftur á haustdögum og hann hefur heilmikla reynslu, sérstaklega samanborið við okkar ungu menn. Við erum að fá tvo nýja erlenda leikmenn og svo er Óli Ragnar í raun "nýr" hjá okkur en hann glímdi við erfið meiðsli allt síðasta tímabil og hann á eftir að efla okkar hóp helling.
Hvernig hefur undirbúningstímabilið gengið hjá ykkur?
Undirbúningstímabilið hefur gengið ágætlega. Við Spiluðum þrjá leiki án erlendra leikmanna í Ljósanæturmóti, erum að klára Reykjanesmót núna en það eru fimm leikir og svo spiluðum við æfingaleik við Tindastól og erum að spila við Snæfell í dag, sunnudag. Hópurinn hefur æft vel í sumar og það ætla allir að vera klárir í slaginn þann 8. október.
Hvernig leggst komandi tímabil í þig í Domino´s deildinni?
Tímabilið leggst vel í mig. Það er mikil tilhlökkun í okkar herbúðum að takast á við veturinn en við vitum sem er að við þurfum að spila vel til að gera vel í þessari sterku deild. Það eru engir leikir gefins þennan veturinn, en eins og ég sagði þá ætlum við að vera klárir í slaginn þegar þetta fer af stað.
Hvaða lið telur þú að verði sterkust?
Þetta er erfið spurning. Ég hef ekki séð sum liðin og mörg þeirra verið án erlendra leikmanna í haust. Stjarnan er að mínu mati með sterkasta hópinn þetta haustið, auk þess sem þeir eru að byggja á sama kjarna og með sömu þjálfarana. Grindvíkingar eru rosalega vel mannaðir sem og KR-ingar og þessi lið verða í toppbaráttunni. Keflavík og Þór Þ. verða líka þarna ofarlega þar sem Lewis og Flake koma til með að styrkja þessi lið umfram íslenska kjarnann og Snæfell eru alltaf sterkir. En ég gæti haldið áfram sem mér finnst segja helling um styrk deildarinnar. ÍR-ingar eru til dæmis að mínu mati mun sterkari í ár með reynslumikinn þjálfara og Svenna kominn til baka úr meiðslum og Hreggi kominn heim. Ég yrði frekar hissa ef þessi 7 lið verða ekki í úrslitakeppni í vor, en veit líka um fimm önnur sem ætla að vera þar, þannig að ég held að það verði ekkert of margir óspennandi leikir á dagskrá í vetur.
Hvaða leikmönnum ert þú spenntur fyrir, hverjir stíga upp?
Ég er nú langáhugasamastur um mína menn og trúi því að við séum með stráka sem bæti við sig snúning í vetur eftir reynslu síðasta vetrar. Frá hinum liðunum sé ég Martin Hermannsson KR-ing stíga stór skref í vetur klárlega, Valur Orri er í stóru hlutverki leiðandi Keflavíkurliðið sem leikstjórnandi og þessir strákar eiga að mínu viti eftir að gera meira en margur heldur þegar um 18 ára drengi er að ræða. Kristófer Acox hlýtur að fá stóra tækifærið í vetur í vesturbænum og mér fannst t.d. Björn Kristjánsson frábær með KR-ingum í unglingaflokki síðasta vetur og hann bankar eflaust hressilega á dyrnar þar. Dagur Kár hefur leikið mjög vel fyrir Stjörnuna á undirbúningstímabili svo það eru margir ungir að gera vel núna. Árni Ragg og Svenni Claessen hafa glímt við erfið meiðsli og þessir strákar eru báðir mjög öflugir leikmenn sem ég sé geta tekið sín lið á næsta level í vetur. Mér finnst reyndar bara frábært að sjá hvað það eru margir ungir menn að stíga upp í svo mörgum liðum og framundan er bara svakalega skemmtilegur vetur.
Keppni í Domino´s deild karla hefst þann 7. október og lýkur fyrstu umferðinni þann 8. október
Fyrsta umferðin
7. október
Fjölnir-KR
Tindastóll-Stjarnan
KFÍ-Skallagrímur
8. október
Keflavík-Grindavík
Snæfell-ÍR
Þór Þorlákshöfn-Njarðvík




