Í sumar tók Helgi Magnússon við KR sem spilandi þjálfari og honum til aðstoðar á leiktíðinni verður Gunnar Sverrisson. Helgi þreytir nú frumraun sína í þjálfun í úrvalsdeild en síðast þegar KR var með spilandi þjálfara var Keith Vassel við stjórnartaumana og honum til aðstoðar var Ingi Þór Steinþórsson en þetta var leiktíðina 1998-19999. Það er Helgi sem stendur skil á svörum í þessu innliti í DHL-Höllina.
Hvaða breytingar hafa orðið á leikmannahópnum hjá ykkur frá síðustu leiktíð?
Hreggviður Magnússon og Ólafur Már Ægisson eru farnir í Breiðholtið. Skarphéðinn Ingason er búinn að leggja skóna á hilluna. Egill Vignisson hefur tekið sér frí frá körfunni til að sinna náminu og loks er Páll Fannar Helgason orðinn aðstoðarþjálfari meistaraflokks kvenna hjá Fjölni.
Komnir: Brynjar Þór Björnsson, Helgi Magnússon, Danero Thomas og Sveinn Blöndal. Einnig eru tveir ungir strákar komnir inn í þetta sem koma úr drengjaflokk, Kormákur Arthursson og Þorgeir Blöndal.
Hvernig hefur undirbúningstímabilið gengið hjá ykkur?
Ágætlega en við höfum ekki náð að spila nægilega marga æfingaleiki sökum meiðsla, veikinda og fjarveru vegna landsliðsverkefna. T.d. þurftum við að afboða okkur á æfingamót á Sauðarkrók núna um helgina þar sem það voru einungis 6 leikmenn leikfærir. Ég vil nota tækifærið og biðja Tindastólsmenn aftur afsökunar á því.
Hvernig leggst komandi tímabil í þig í Domino´s deildinni?
Mjög vel. Stefnir allt í jafna og skemmtilega deild.
Hvaða lið telur þú að verði sterkust?
Erfitt að segja þar sem ég hef ekki séð mikið til hinna liðanna en ég myndi halda að Stjarnan, Þór, Snæfell, Grindavík og Keflavík verði sterk ásamt okkur. Svo á náttúrulega eftir að sjá hvernig útlendingamál þróast.
Hvaða leikmönnum ert þú spenntur fyrir, hverjir stíga upp?
Þar sem ég hef verið búsettur í Svíþjóð undanfarin 3 ár þá er ég kannski ekki í bestu stöðunni til að dæma um þetta, en þeir leikmenn sem voru að spila með u-18 í fyrra litu vel út á Norðurlandamótinu. Einnig á ég von á að ungu strákarnir í KR-liðinu láti til sín taka.
Keppni í Domino´s deild karla hefst þann 7. október og lýkur fyrstu umferðinni þann 8. október
Fyrsta umferðin
7. október
Fjölnir-KR
Tindastóll-Stjarnan
KFÍ-Skallagrímur
8. október
Keflavík-Grindavík
Snæfell-ÍR
Þór Þorlákshöfn-Njarðvík
