spot_img
HomeFréttirInnlit hjá liðunum í Domino´s deild karla: ÍR

Innlit hjá liðunum í Domino´s deild karla: ÍR

Að lokinni síðustu leiktíð tók Jón Arnar Ingvarsson við ÍR en þar er hann öllum hnútum kunnugur en hann var með liðið áður en Gunnar Sverrisson tók við því. Jón situr fyrir svörum í innlitinu í gamla Seljaskóla sem í dag ber nafnið Hertz Hellirinn.
Hvaða breytingar hafa orðið á leikmannahópnum hjá ykkur frá síðustu leiktíð?
Svona helst að Eiríkur Önundarson, Kristinn Jónasson, Húni Húnfjörð og Bjarni Valgeirsson hafa tekið sér tímabundið frí frá boltanum. Höfum fengið Hreggvið Magnússon aftur heim og Ólaf Ægisson úr KR. Svo er Sveinbjörn Claessen að koma til baka eftir hnjask og Þorgrímur Emilsson heim frá USA. Verðum svo með annað útlendingaprógram.
 
Hvernig hefur undirbúningstímabilið gengið hjá ykkur?
Mjög vel, menn hafa tekið mjög vel á því og eru tilbúnir í slaginn.
 
Hvernig leggst komandi tímabil í þig í Domino´s deildinni?
Mjög vel, deildin virðist ætla að verða jöfn og skemmtileg. Flest lið hafa svona heldur verið að styrkjast og nokkuð um unga leikmenn sem munu láta til sín taka.
 
Hvaða lið telur þú að verði sterkust?
Það er nú mjög erfit að segja til um það. Flest liðin eru að fá útlendingana rétt fyrir mót og þess vegna hefur maður ekki séð mikið af fullmótuðum liðum. Það mun náttúrulega hafa mjög mikið að segja hvernig útlendingalottóið kemur út. KR er með sterkasta mannskapinn fyrir mót, svo má búast við Þór, Grindavík, Snæfelli, Stjörnunni og Keflavík sterkum.
 
Hvaða leikmönnum ert þú spenntur fyrir, hverjar stíga upp?
Við erum með nokkra leikmenn sem ég vænti mikils af, hafa æft vel og lagt inn fyrir því að stíga næstu skref. Svo eru mjög efnilegir 94 og 95 strákar í nokkrum liðum sem eru að vaxa mikið þessi árin og hafa mökuleika á að ná langt.
 
Keppni í Domino´s deild karla hefst þann 7. október og lýkur fyrstu umferðinni þann 8. október
 
Fyrsta umferðin
 
7. október
Fjölnir-KR
Tindastóll-Stjarnan
KFÍ-Skallagrímur
 
8. október
Keflavík-Grindavík
Snæfell-ÍR
Þór Þorlákshöfn-Njarðvík
  
Fréttir
- Auglýsing -