HomeFréttirInnansveitarkrónika í Garðabæ: Upphitunarmyndband og allur pakkinn

Innansveitarkrónika í Garðabæ: Upphitunarmyndband og allur pakkinn

,,Í kvöld fer fram í Ásgarði sögulegur leikur í Powerade bikarkeppninni þegar Stjarnan B leikur gegn úrvalsdeildarliði Stjörnunnar. B lið Stjörnunnar er margfaldur Íslandmeistari B liða og A liðið situr sem stendur í þriðja sæti Iceland Express deildarinnar. Þannig að búast má við mjög spennandi leik. B liðs menn hafa fullyrt að þeir muni hafa úthald í heilan leik og telja þetta í raun úrslitaleik keppninnar, það lið sem sigri þennann leik fari alla leið,“ segir í tilkynningu frá Körfuknattleiksdeild Stjörnunnar.
Jón Kr. Gíslason mun draga fram skóna og heyrst hefur að hann eigi í samningaviðræðum við bæði lið og kemur ekki í ljós fyrr en rétt fyrir leik með hvoru liðinu hann mun leika. En hann mun klárlega leika annað hvort með eða á móti syni sínum. Þannig að það verða feðgar á vellinum og einnig verða þarna tvíburar í sitt hvoru liðinu þannig að þetta verður fyrir margar sakir áhugaverð viðureign.
 
Þannig að nú er um að gera að gera að drífa sig í Ásgarð í kvöld með alla fjölskylduna, þetta verður klárlega frábær fjölskylduskemmtun.
 
 
Leikurinn hefst stundvíslega kl 19:15!
 
  
Fréttir
- Auglýsing -