spot_img
HomeFréttirIngi Þór: Þær eru alvöru vírnetsnaglar!

Ingi Þór: Þær eru alvöru vírnetsnaglar!

Á brattann var að sækja hjá toppliði Snæfells í kvöld sem mætti í Hafnarfjörð á Kieraah Marlow. Þrátt fyrir fjarveru þessa frábæra leikmanns tókst Hólmurum að galdra fram sigur og þjálfari þeirra, Ingi Þór, fór fögrum orðum um sína liðsmenn fyrir vikið.
 
,,Það var vitað fyrir leik að við myndum leika án Marlow og þéttu stelpurnar sig heldur betur saman. Allar komu þær með flott framlag og engin missti höfuðið þrátt fyrir að liðið hikstaði örlítið gegn svæðinu í upphafi þriðja. Þá náðum við að naglhreinsa leikinn með Listasmiðinn Baldur Þorleifs sem verkstjóra og dömurnar sýndu að þær eru alvöru Vírnetsnaglar! Sigurinn er auðvitað mjög dýrmætur fyrir okkur og ég var gríðarlega sáttur við liðsheildina. Vörnin, baráttan og fráköstin alveg til fyrirmyndar,” sagði Ingi Þór sem berst af hörku við Keflavík þessi dægrin á toppi deildarinnar en liðin mætast einmitt í fimmtu umferð.
 
Mynd/ Þorsteinn Eyþórsson – Frá Schenkerhöllinni í kvöld.
  
Fréttir
- Auglýsing -