spot_img
HomeFréttirIngi Þór: Það eru gæði í leikmönnunum sem við erum með

Ingi Þór: Það eru gæði í leikmönnunum sem við erum með

Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari Snæfells, var mjög ánægður með framlag og spilamennsku síns liðs eftir sterkan og nokkuð öruggan sigur á Val að Hlíðarenda í kvöld.  Snæfell leiddi allan leikinn og gerðu svo algjörlega út um hann með einstaklega góðum kafla í fjórða leikhluta.  Þær halda þar með áfram góðu gengu eftir virkilega sterkt undirbúningstímabil.  
 

"Við erum ekkert að spila á mörgum og að eiga svona mikið eftir í lokinn þegar þær voru komnar ofaní hálsmálið á okkur með fjögur stig, þá svöruðum við því mjög sterkt.  Það eru gæði í leikmönnunum sem við erum með".  

Valur náði að minnka muninn niður í fjögur stig í stöðunni 42-46 þegar tæplega átta mínútur voru til leiksloka, þá skellti Snæfell hreinlega í lás og vann það sem eftir lifði leiks 8-20.  

"Þær efldust við þetta, við vorum ekkert sáttar við hvernig við vorum að frákasta varnarlega séð.  Þær voru að taka mjög mikið af sóknarfráköstum, tóku einhver sjö í fyrri og tóku held ég ennþá fleiri í seinni hálfleik.  Þrátt fyrir það þá vorum við að halda þeim í erfiðum skotum og ég er bara mjög ánægður með framlagið frá öllum"

Miðað við gengi liðsins á undirbúningstímabilinu og þessa byrjun á tímabilinu er ekki annað hægt en að velta því fyrir sér hvort Snæfell sé hreinlega óstöðvandi í þessum ham.

"Ég veit það nú ekki.  Við erum bara býsna góðar og við erum að njóta góðs af því að þessi hópur var saman í fyrra. Þó svo að það sé búið að taka af okkur góða leikmenn þá er Berglind Gunnars að koma upp núna, Hildur Björg er búin að bæta mikið við sig, Alda er í fínu standi, Hildur er í fínu standi og við erum með sama útlendinginn.  Við höldum bara áfram frá því sem við vorum að gera, við erum ekki búnar að breyta neitt voðalega miklu.  Stelpurnar eru kannski bara að sýna það að við erum búin að æfa vel í sumar, fóru í góða æfingaferð, þær eru bara vel stemmdar".

Hversu sterkt er það fyrir liðið að halda Kieraah Marlow?

"Fyrst og fremst er hún góð,  hún er góður félagi og henni líður vel í Hólminum.  Þegar fólki líður einhverstaðar vel þá vill maður fá það aftur og hún vildi koma aftur.  Þetta var engin spurning.  það er mikilvægt fyrir okkur að við þurfum ekki að læra inná nýja manneskju og hún inná okkur.  Vonandi verður þetta bara betra og betra". 

Snæfell er spáð öðru sæti af leikmönnum og þjálfurum deildarinnar, Hvernig leggst sú spá í þig?

"Ég átti nú ekki von á því, ég átti von á þriðja til fjórða sæti, jafnvel fjórða sæti fyrir aftan KR.  Hin þrjú liðin af þessum efstu fjögur lið eru með breidd umfram okkur.  Haukar, Njarðvík, Grindavík og Fjölnir, ég er ekkert viss um að þetta verði eitthvað skipt.  Ég er ekkert voðalega viss um það.  Það eykur náttúrulega bara sjálfstraustið að vera spáð ofar, það er engin pressa á okkur og við notum þetta bara sem sjálfstraust.  Fólk trúir á okkur og hefur álit á því að við séum góðar og við ætlum að nýta okkur það"  

[email protected]

Mynd: Þorsteinn Eyþórsson

Fréttir
- Auglýsing -