HomeFréttirIndiana með besta sigurhlutfallið í NBA

Indiana með besta sigurhlutfallið í NBA

Brooklyn Nets töpuðu sínum tólfta leik af 16 á tímabilinu í nótt þegar þeir spiluðu gegn Houston Rockets.  Nets hafa verið í meiðslavandræðum en mest af öllu í vandræðum með að spila saman á þeim mannskap sem rússneski auðjöfurinn safnaði saman í sumar.  Í nótt voru það minna þekktir leikmenn sem komu af bekknum sem tóku af skarið fyrir Nets og skoruðu 71 stig af 95 stigum liðins.  Paul Pierce, Joe Johnson og Brooke Lopez skoruðu því aðeins úr 8 af 25 skotum sínum í leiknum en Andray Blatche og Shaun Livingston nýttu hvorugir eitt af sínum skotum í nótt.  Jason Kidd sem vakti mikla athygli með því að hella viljandi vatni á völlinn til þess að græða tíma þarf því að huga að meiru en bara að finna frumlegar leiðir til þess að kaupa tíma í leikhlé.  
 Úrslit næturinnar má sjá hérna fyrir neðan en helst ber að nefna sigur Lakers á Detroit en Kobe Bryant lausir Lakers standa eins og er jafnir Stephan Curry og félögum í Golden State með 53% sigurhlutfall, en Golden State tapaði með einu stigi gegn Oklahoma í nótt.    San Antonio er komið aftur á sigubrautina með góðum sigri á Orlando Magic og Indiana unnu sinn 15 leik á tímabilinu og þann sjötta í röð í nótt og hafa þar með tekið sér hlutverk sigursælasta liðs tímabilsins í NBA deildinni þetta árið.  Á meðan hafa Milwaukee menn tapað 11 leikjum í röð og aðeins sigrað 2 leiki af 15 leikjum tímabilsins.  
 

FINAL

 
7:00 PM ET
MIL

76
CHA

92
W
  Q1 Q2 Q3 Q4 F
MIL 20 21 18 17 76
 
 
 
 
 
CHA 24 27 20 21 92
  MIL CHA
P Knight 17 Jefferson 23
R Udoh 6 Biyombo 14
A Middleton 3 McRoberts 4
 
Highlights
 

Fréttir
- Auglýsing -