spot_img

„I’m back”

Tindastóll hefur á nýjan leik samið við Keyshawn Woods um að leika með liðinu á yfirstandandi tímabili í Subway deild karla.

Keyshawn lék með liðinu á síðasta tímabili þegar félagið vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil.

Keyshawn er fæddur 1996 og er 191 sm á hæð og spilar í stöðu skotbakvarðar. Hann er mjög öflugur varnarmaður og góð skytta. Hann hefur spilað í efstu deildum í Hollandi, Póllandi, Grikklandi og var í vetur í Tyrklandi.


„Keyshawn Woods I would like to thank my Tindastoll family and fans for welcoming me back with open arms, IM BACK!,,


„Dagur Þór Baldvinsson, formaður kkd Tindastóls ég er ánægður að fá Keyshawn til liðs við Tindastól fyrir lokaátökin og mun hann styrkja okkar góða og vel mannaða leikmannahóp. Með jákvæðni, stemmningu og samstöðu sem Tindastóll er þekkt fyrir geta magnaðir hlutir gerst,,.

Næsti leikur Tindastóls er á morgun, fimmtudag 1. febrúar kl. 19:15 á móti Breiðablik í Síkinu.

Grafík / Halldór Halldórsson
Ljósmynd / Davidmar.Net Óttar Geirsson

Fréttir
- Auglýsing -