HomeFréttirIHandle 4. árið í röð

IHandle 4. árið í röð

Shawn Faust heldur áfram að skóla íslenska ungviðið og mun nú í sumar koma fimmta árið í röð og skerpa á og auka við boltameðferð leikmanna. Skráning hefur gengið vel og enn er hægt að bæta við leikmönnum sem eru staðráðnir í að bæta sinn leik fyrir næsta tímabil.

Faust hefur notið gríðarlegra vinsælda um allan heim fyrir námskeið sín og bætt boltameðferð jafnvel þeirra sem teljast hinir bestu í fræðunum.

Smá breyting er á námskeiðinu í ár þannig að við erum bara að nýta okkur tvo daga en fyrsta daginn eru tvær æfingar og seinni daginn er ein æfing.

Allt um námskeiðið er að finna með því að smella hér. en það er haldið dagana 18 til 19 júní í Ásgarði Garðabæ.

Námskeiðið er tvískipt og haldið dagana 18 til 19. júní á þeim tímum sem eru að neðan:

11-14 ára : HÓPUR 1 12:30 og 16:15 þann 18. júní og svo 12:30 til 14:30 þann 19. júní

15+ ára HÓPUR 2 14:15 og 18:00 þann 18. júní og svo 15:00 til 17:00 þann 19. júní

Námskeiðið kostar 14,500,- (Lækkun frá í fyrra!!!)

Shawn Faust sem þjálfað hefur NBA leikmenn eins og Killian Hayes – Detroit Pistons, Dwayne Bacon – Orlando Magic / AS Monaco, Tony Bradley – Chicago Bulls. Þjálfar einnig atvinnumenn sem spila í Evrópu og  leikmenn úr háskólaboltanum sem vilja bæta leikinn sinn. Ferill Shawn spanar fjölda ára þar sem hann spilaði atvinnumannabolta í Evrópu og Suður Ameríku ásamt því að spila í NBA G-league.

Viltu bæta við leikinn þinn, þá er námskeiðið hjá Shawn Faust það rétta fyrir þig. Shawn Faust heldur námskeið 18-20. júní í Ásgarði.

Fréttir
- Auglýsing -