NBA meistarar síðustu tveggja ára, Miami Heat, eru þessa dagana að undirbúa sig fyrir átökin á komandi tímabili. Margir tala um að það sé erfiðara að verja titil en að vinna hann og því verður ærið verkefni fyrir meistarana að halda titlinum þriðja árið í röð. Miami fóru þá áhugaverðu leið að bjóða miklum íþróttamanni og sigurvegara í heimsókn á æfingu hjá liðinu um daginn. Það var boxarinn ósigrandi, Floyd Mayweather jr. en hann er ósigraður í 45 bardögum á atvinnumannaferli sínum og því margfaldur heimsmeistari í boxi.
Floyd Mayweather hélt litla ræðu fyrir liðið ásamt því að fá að fylgjast með æfingu með Pat Riley sér við hlið.
Lebron James talaði við fjölmiðla eftir æfinguna og sagði það mikinn heiður að fá meistaran í heimsókn. “Við ætlum að reyna að verja titlana tvo, hann er búinn að vera að verja titla í langan tíma. Hann þekkir stöðuna sem við erum í. Það er spennandi að vera í félagsskap með einum af bestu boxurum allra tíma. Það er eitthvað sem maður á eftir að muna eftir í mörg ár. Það er heiður og blessun að fá hann hingað”.
Það er því vonandi fyrir stuðningsmenn liðsins að floyd Mayweather hafi kveikt neista í Miami mönnum fyrir komandi tímabil að berjast fyrir þriðja titlinum fræga en aðeins þrjú lið í sögu NBA hafa afrekað það. Chicago Bulls hafa unnið titilinn þrjú ár í röð á tveimur mismunandi tímabilum á gullaldar árum Michael Jordan. Los Angeles Lakers unnu síðast þrjá titla í röð þegar Kobe Bryant og Shaqueill O’Neill fóru fyrir liðinu. Eins hefur Boston Celtic unnið þrjá í röð eða “three peat” eins og kanarnir kalla það, en Boston unnu þá 8 ár í röð frá 1958-66.




