spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaHörður Axel yfirgefur Keflavík

Hörður Axel yfirgefur Keflavík

Hörður Axel Vilhjálmsson, fyrirliði karlaliðs Keflavíkur og þjálfari kvennaliðsins, hefur sagt upp samningi sínum við Keflavík. Staðfestir félagið þetta á samfélagsmiðlum rétt í þessu.

Hann mun þar af leiðandi ekki leika með karlaliðinu á næsta tímabili né þjálfa kvennaliðið.

Hörður Axel kom sem leikmaður til Keflavíkur árið 2008 og hefur alla sína tíð síðan á Íslandi leikið með liðinu, en einnig var hann á mála hjá tíu félögum erlendis á þessum tíma. Sem leikmaður leiddi hann liðið í tvígang í úrslit, árið 2010 og árið 2021. Sem þjálfari tók hann við kvennaliði félagsins fyrir nýafstaðið tímabil og fór nokkuð óvænt með þær alla leið í lokaúrslit.

Fréttir
- Auglýsing -