spot_img
HomeBónus deildinBónus deild karlaHörður Axel frá næstu vikurnar

Hörður Axel frá næstu vikurnar

Leikstjórnandi Keflavíkur Hörður Axel Vilhjálmsson verður frá næsta mánuðinn vegna meiðsla. Staðfestir félagið þetta við Körfuna fyrr í dag.

Hörður Axel meiddist á þumli í leik liðsins gegn Breiðabliki í Subway deildinni á dögunum. Hann ku þó hafa leikið gegn Haukum í umferðinni á eftir, í síðustu viku, með óafvitandi brotinn þumal, en verður nú frá vegna þessa næstu 4-6 vikurnar eftir að hafa farið í myndatöku.

Það munar um minna fyrir Keflavíkurliðið, en í 12 leikjum fyrir þá í deildinni í vetur hefur hann skilað 10 stigum, 3 fráköstum og8 stoðsendingum að meðaltali í leik.

Fréttir
- Auglýsing -