spot_img
HomeFréttirHlynur segir góða þróun hafa verið á landsliðinu frá því hann hætti...

Hlynur segir góða þróun hafa verið á landsliðinu frá því hann hætti fyrst árið 2019 “Held að mér hafi þótt skemmtilegast á æfingunni í gær”

Ísland tekur á móti Spáni í Laugardalshöll annað kvöld í næst síðasta leik undankeppni HM 2023. Síðasti leikur þeirra verður svo gegn Georgíu úti í Tíblisi komandi sunnudag 26. febrúar. Möguleikar Íslands á að tryggja sig áfram og á lokamótið eru ennþá raunverulegir þrátt fyrir tvö erfið töp í síðasta glugga keppninnar. Fyrir leikinn eru Georgía og Ísland jöfn að sigrum með fjóra á meðan að Úkraína er einum sigurleik fyrir aftan með þrjá, en liðin þrjú berjast um síðasta sætið inn á lokamótið úr L riðil.

Hérna eru fréttir af HM 2023

Karfan kom við á æfingu hjá liðinu fyrr í dag og ræddi við Hlyn Bæringsson leikmann liðsins um leikina tvo og hvernig það væri að koma aftur inn í hóp íslenska liðsins, en Hlynur lagði landsliðsskóna formlega á hilluna árið 2019.

Fréttir
- Auglýsing -