spot_img
HomeFréttirHlynur ekki með á æfingu í dag

Hlynur ekki með á æfingu í dag

Landsliðið æfði nú í hádeginu í Hartwall Arena fyrir leikinn á morgun gegn Slóveníu. Létt var yfir hópnum en leikmenn fengu að hitta fjölskyldur og fara út af landsliðshótelinu í gærkvöldi eftir tvo erfiða leiki. 

 

Ein æfing fór fram í dag hjá Íslandi en Hlynur Bæringsson tók ekki þátt í æfingunni, þetta staðfesti Arnar Guðjónsson við Karfan.is eftir æfingu. „Hlynur var ekki með, hann var smá slappur í morgun.„ sagði Arnar. 

 

Ólafur Ólafsson leikmaður Grindavíkur sem var í 15 manna hóp liðsins var þó meðal leikmanna í dag á æfingunni og var með félögunum. Ekki er gert ráð fyrir að Hlynur verði meira frá en þessa æfingu. 

 

Myndir frá æfingu dagsins má finna hér. 

Fréttir
- Auglýsing -