Hlynur Bæringsson leikmaður Sundsvall var svekktur með tapið í kvöld gegn Uppsala og lét það í ljós í samtali við Karfan.is "Það vantar einhverja menn, þ.á.m Kobba sem munar mikið um. Aðalvandamálið í þessum leik að við áttum í miklum vandræðum með að komast inní okkar sóknarleik og vorum mjög staðir þess vegna." sagði Hlynur.
"Þetta var leikur sem við áttum að vinna, erum með betri mannskap að mínu mati. En það var þó ekkert vanmat, alls ekki. Við bara erum ekki komnir á þann stað sem viljum vera á. Þurfum einhvern tíma með þennan hóp áður en við náum því held ég. Þegar það hefst, þá er ég mjög spenntur fyrir þessu liði, við verðum ábyggilega góðir þegar það frystir almennilega hérna í Sundsvall." sagði Hlynur ennfremur.