HomeFréttirHleypur á nærbuxunum kringum blokkina sína ef Snæfell dettur út gegn Haukum

Hleypur á nærbuxunum kringum blokkina sína ef Snæfell dettur út gegn Haukum

 
Nú ættu sem flestir að styðja Hauka í úrslitakeppni Iceland Express deildarinnar því Hlynur Bæringsson fyrrum leikmaður Snæfells og núverandi leikmaður Sundsvall Dragons hefur kastað því fram á vefsíðu sinni að hann ætli sér að hlaupa á nærbuxum einum fata í kringum blokkina sína í Sundsvall ef Snæfell tapar einvíginu gegn Haukum.
Hlynur rýnir í úrslitakeppnina og má lesa pistil hans í heild hérna en við látum einnig fylgja með spá Hlyns hér á einvígi Snæfells og Hauka:
 
Snæfell-Haukar
Þetta er jafn borðleggjandi og það verður. Snæfell er með betri leikmenn í öllum stöðum, betur þjálfaðir og með öflugri heimavöll. Með allt þetta á móti þér er nánast ómögulegt að vinna í körfubolta. Ef Snæfell tapar þessu einvígi þá mun ég hlaupa á nærbuxunum í kringum blokkina mína í Svíþjóð og læt Kobba taka það upp. Auðvelt 2-0.
 
Fréttir
- Auglýsing -