spot_img
HomeFréttirHjálmar tekinn inn í íslenska landsliðshópinn fyrir leikina gegn Spáni og Georgíu

Hjálmar tekinn inn í íslenska landsliðshópinn fyrir leikina gegn Spáni og Georgíu

Íslenska karlalandsliðið undirbýr sig þessa dagana fyrir lokaleiki sína í undankeppni HM 2023. Þar mætir liðið Spáni heima komandi fimmtudag 23. febrúar áður en liðið ferðast til Georgíu til þess að mæta heimamönnum 26. febrúar.

Íslenski hópurinn var tilkynntur á dögunum, en ein breyting hefur nú verið gerð á honum þar sem leikmaður Íslandsmeistara Vals Hjálmar Stefánsson hefur verið boðaður til æfinga. Hópurinn fer því úr 15 leikmönnum í 16, en til hvers leiks verða svo skráðir 12 leikmenn.

Íslenski hópurinn:

Elvar Már Friðriksson · Rytas Vilnius, Litháen (63)

Haukur Helgi Briem Pálsson · Njarðvík (73)

Hilmar Smári Henningsson · Haukar (4)

Hjálmar Stefánsson · Valur (19)

Jón Axel Guðmundsson · Victoria Libertas Pesaro, Ítalíu (23)

Hlynur Bæringsson · Stjarnan (129)

Kári Jónsson · Valur (30)

Kristinn Pálsson · Aris Leuuwarden, Hollandi (15) 

Kristófer Acox · Valur (50)

Ólafur Ólafsson · Grindavík (52)

Ragnar Ágúst Nathanaelsson · Hamar (57)

Sigtryggur Arnar Björnsson · Tindastóll (26)

Styrmir Snær Þrastarson · Þór Þorlákshöfn (7)

Tryggvi Snær Hlinason · Basket Zaragoza, Spáni (56)

Þórir G. Þorbjarnarson · Ovideo, Spáni (9)

Ægir Þór Steinarsson · CB Lucentum Alicante, Spáni (78)

Meiddir: Martin Hermannsson, Valencia á Spáni, og Hörður Axel Vilhjálmsson, Keflavík, eru báðir meiddir að þessu sinni og ekki leikfærir.

Umfjöllun Körfunnar um íslensku landsliðin er kostuð af Lykil

Fréttir
- Auglýsing -