Valur lagði ÍR í kvöld í lokaleik 13. umferðar Dominos deildar karla, 101-90. Valur er eftir leikinn í 7.-9. sæti deildarinnar með 10 stig líkt og Njarðvík og Tindastóll á meðan að ÍR er í 5.-6. sætinu með 12 stig líkt og Grindavík.
Karfan spjallaði við Hjálmar Stefánsson, nýjan leikmann Vals, eftir leik í Origo Höllinni.