HomeBikarkeppniHamar stakk af í seinni hálfleik gegn baráttuglöðum Mosfellingum

Hamar stakk af í seinni hálfleik gegn baráttuglöðum Mosfellingum

Hamar tryggði sér sæti í 16-liða úrslitum bikarkeppni KKÍ með 101–67 útisigri á Aftureldingu í Mosfellsbæ. Þrátt fyrir 34 stiga mun í lokin veittu heimamenn harða keppni framan af og var staðan jöfn í leikhléi, 42–42.

Í síðari hálfleik tóku Hvergerðingar öll völd á vellinum, unnu þriðja leikhluta með tíu stigum og gengu frá leiknum í þeim fjórða. Lykillinn að sigri gestanna lá ekki síst í miklum yfirburðum í teignum en Hamar tók alls 60 fráköst í leiknum gegn 35 fráköstum Aftureldingar.

Birkir Máni Daðason var stigahæstur hjá Hamri með 25 stig og 7 fráköst, Joshua Hardiman átti öfluga tvennu með 19 stigum, 15 fráköstum og 3 vörðum skotum, og Lúkas Aron Stefánsson skilaði sömuleiðis glæsilegri tvennu með 15 stigum, 11 fráköstum, 5 stoðsendingum og 6 stolnum boltum. Þá skilaði Jose Medina Aldana 12 stigum, 5 fráköstum og 7 stoðsendingum, Nicolas Germaan M. Dierynck bætti við 12 stigum og Atli Rafn Róbertsson skoraði 11 stig og tók 7 fráköst.

Hjá heimamönnum í Aftureldingu dró Ólafur Snær Eyjólfsson vagninn með 21 stigi og 5 fráköstum. Alexander Jón Finnsson skilaði 11 stigum og 7 fráköstum, en þeir El Hadji Malick Khouma (5 fráköst) og Kristófer Óli Kjartansson skoruðu 10 stig hvor. Símon Logi Heiðarsson skoraði 6 stig og tók 5 fráköst, Björgvin Már Jónsson skilaði 5 stigum og 4 fráköstum og Magni Fannar Jónsson skoraði 4 stig. Allir tólf leikmenn á leikskýrslu Mosfellinga komu við sögu í leiknum.

Afturelding – Hamar 67–101 (22–26, 20–16, 15–25, 10–34)

Fréttir
- Auglýsing -