spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaHilmar Smári með 26 stig er ungmennalið Valencia kjöldróg Inalco Alcora Caixa...

Hilmar Smári með 26 stig er ungmennalið Valencia kjöldróg Inalco Alcora Caixa Rural

Hilmar Smári Henningsson fer vel af stað með ungmennaliði Valencia þetta tímabilið á Spáni. Unnu þeir leik sinn í kvöld gegn Inalco Alcora Caixa Rural nokkuð örugglega, 49-93. Áður hafði liðið unnið Basquet Aldaia í fyrsta leik tímabilsins þann 17. síðastliðinn.

Var Hilmar Smári stigahæsti leikmaður vallarins með 26 stig, en við það bætti hann 2 fráköstum, stoðsendingu og 3 stolnum boltum. Þá var hann einkar skilvirkur í leiknum. 26 stigin skoraði hann á 75% skotnýtingu, en hann setti 6 þrista í leiknum úr 9 tilraunum.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -