spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaHilmar í leikmannahóp aðalliðs Valencia í kvöld

Hilmar í leikmannahóp aðalliðs Valencia í kvöld

Valencia mætir liði San Pablo Burgos í spænsku úrvalsdeildinni í kvöld. Martin Hermannsson verður að vanda í eldlínunni með liði Valencia en hann verður ekki eini íslendingurinn.

Þær frengir bárust nefnilega í morgun að Hilmar Henningsson verður í leikmannahópi Valencia í fyrsta sinn. Hann hefur staðið sig gríðarlega vel með unglingaliði félagsins og fær nú verðskuldað tækifæri.

Samkvæmt KKÍ er þetta í fyrsta sinn sem tveir íslendingar eru samherjar í liði í efstu deild á Spáni. Frábær árangur hjá hinum unga Hilmari sem er greinilega að vekja athylgi þar ytra.

Leikur liðanna verður í beinni utsendingu á Stöð 2 Sport kl 18:50. Spennandi verður að sjá hvort þeir frændur verði saman á vellinum.

Fréttir
- Auglýsing -