HomeBónus deildinBónus deild karlaKR valtaði yfir Ármann eftir magnað áhlaup í öðrum leikhluta

KR valtaði yfir Ármann eftir magnað áhlaup í öðrum leikhluta

KR héldu áfram sigurgöngu sinni í Bónus deild karla í kvöld þegar liðið lagði nágranna sína í Ármanni með 34 stiga mun, 108–74, á Meistaravöllum og trónir á toppi deildarinnar með sex stig eftir þrjár umferðir.

Ármann byrjuðu leikinn af miklum krafti og leiddu 18–26 eftir fyrsta leikhluta, en Vesturbæingar sneru leiknum algjörlega á hvolf með mögnuðum 35–11 kafla í öðrum leikhluta. Eftir það var aldrei spurning um hvort liðið færi með sigur af hólmi og Ármann leitar enn að sínum fyrsta sigri í deildinni.  

Heimamenn réðu öllu undir körfunni, tóku 54 fráköst gegn 35 fráköstum Ármenninga og skoruðu 62 stig inni í teignum. Þá refsaði KR grimmt fyrir mistök andstæðinganna og skoraði 45 stig af varamannabekknum.  

Linards Jaunzems fór fyrir liði KR með laglega tvennu, skoraði 21 stig og reif niður 17 fráköst. Rafail Lanaras skilaði 18 stigum og 7 fráköstum, Þorvaldur Orri Árnason bætti við 17 stigum og Adam Ramstedt tók 9 fráköst og skoraði 11 stig. Þórir Guðmundur Þorbjarnarson lék sömuleiðis vel með 6 stig, 8 fráköst og 5 stoðsendingar.  

Hjá Ármanni dró Ingvi Þór Guðmundsson vagninn með 16 stig, 7 stoðsendingar og 6 fráköst. Adam Johansson bætti við 12 stigum, Oliver Bieshaar skoraði 11 stig og Zarko Jukic skilaði 10 stigum, 7 fráköstum og 5 stoðsendingum.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -