HomeBónus deildinBónus deild karlaÞriggja stiga veisla á Héraði þegar Höttur lagði ÍR

Þriggja stiga veisla á Héraði þegar Höttur lagði ÍR

Höttur landaði sínum öðrum sigri í Bónus deild karla í kvöld með 108–96 heimasigri gegn ÍR í miklum skot- og hraðaleik í Varðarhöllinni á Egilsstöðum.

Jafnræði var með liðunum framan af og leiddu gestirnir úr Breiðholti með einu stigi í hálfleik, 54–55, eftir fjörlegan annan leikhluta. Heimamenn mættu hins vegar gríðarlega einbeittir til leiks í síðari hálfleiknum, unnu þriðja leikhlutann 27–18 og náðu mest rúmlega tuttugu stiga forskoti í fjórða leikhluta áður en ÍR lagaði stöðuna á lokamínútunum.  

Stórkostleg skotnýting fyrir utan þriggja stiga línuna skóp sigur Hattar en leikmenn liðsins settu niður 16 af 28 þristum sínum, sem gerir heillandi 57% nýtingu, auk þess að tapa aðeins 6 boltum allan leikinn.  

Marquis Jackson átti stórleik fyrir Hött og stýrði sóknarleiknum af mikilli yfirvegun, en hann skilaði glæsilegri tvennu með 24 stigum og 11 stoðsendingum ásamt 34 framlagsstigum. Sveinn Búi Birgisson átti sömuleiðis frábæran leik og setti niður 22 stig, Adam Eiður Ásgeirsson skoraði 16 stig og Joshua James Martin bætti við 15 stigum og 7 fráköstum. Þá skilaði Obadiah Nelson Trotter 10 stigum og 4 stoðsendingum.  

Hjá ÍR fór Hákon Örn Hjálmarsson fyrir sínum mönnum með 25 stig og 6 stoðsendingar og Montez Mathis skilaði 23 stigum og 5 stoðsendingum. Tómas Orri Hjálmarsson skoraði 16 stig og Kevin Kone barðist hetjulega undir körfunni með tvennu, 15 stig og 15 fráköst.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -