Anthony Gurly, annar af tveimur erlendum leikmönnum Tindastóls, lét Helga Má Magnússon finna fyrir olnboganum á sér í leik Tindastóls og KR í Síkinu í kvöld. Tindastóll vann leikinn með 6 stiga mun, 91-85 og því þriðji tapleikur KR á tímabilinu staðreynd. Sigurinn gæti þó dregið dilk á eftir sér fyrir Tindastól því mjög augljóslega sést á upptöku af leiknum að þegar fimm mínútur eru eftir af leiknum gefur Anthony frá sér vænlegt olnbogaskot.
Helgi Már er að setja skrín á Anthony sem tekur því eitthvað illa og lætur Helga finna fyrir því í kjölfarið. Samkvæmt live-stat úr leiknum er ekki dæmd villa á Anthony og hafa dómarar leiksins því ekki séð atvikið. Samkvæmt fróðum mönnum er aganefnd KKÍ heimilt að taka upp mál út frá upptöku ef ekki hefur verið dæmt á brotið í leiknum sjálfum. Það á því eftir að koma í ljós hvort brotið af einhverjar afleiðingar í för með sér.
Myndbandið er þess virði að kíkja á því sjón er sögu ríkari. Fúsíjama TV hafa birt myndband af atvikinu sem má sjá hér.
**** Uppfært: Betra sjónarhorn er að sjá hér á vefsíðu Vísis ****
Mynd úr safni – Davíð Eldur
frétt uppfærð kl 21:25




