HomeFréttirHelgi Björn frá í einhvern tíma

Helgi Björn frá í einhvern tíma

Það vakti ef til vill athygli einhverja að Helgi Björn Einarsson framherjinn öflugi í liði Hauka var ekki með í leiknum gegn Val í gærkvöld. Helgi varð fyrir því óláni að fá högg á nýra á æfingu Haukamanna sem og kviðarvöðvar tognuðu.
 
Helgi sem er búinn að vera frá æfingum í eina hálfa viku segir að erfitt sé að segja til um hvenær hann geti hafið æfingar að nýju þar sem áverkarnir séu innvortis og misjafnt sé hversu lengi svona hlutir eru að gróa.
 
„Þetta gerðist þannig að Terrence [Watson] var að keyra að körfunni og ég kom í hjálpina. Ég fékk þá hnéð á Terrence í síðuna og steinlá. Ég vissi strax að það væri eitthvað að þar sem ég gat ekki staðið upp strax og fór því upp á slysó. Mér var skellt í sónar og blessunarlega var ekkert rifið en læknarnir áttu samt erfitt með að segja til um það þar sem þetta var allt saman frekar bólgið. En höggið fór beint á nýrað og svo tognuðu kviðarvöðvar,“ sagði Helgi um aðdragandann af atvikinu.
 
Helgi er ekki viss hvenær hann getur hafið æfingar að nýju en er aðeins byrjaður að láta á líkmann reyna til að sjá hvar hann er staddur.
 
„Það er erfitt að segja til um hvenær ég get byrjað að æfa aftur þar sem þetta er innvortis og það tekur mis langan tíma að jafna sig. Ég er búinn að prófa að fara í lyftingarsalinn og rífa aðeins í lóðin en enn sem komið er get ég ekkert hlaupið,“ sagði Helgi og var að vonum svekktur að geta ekki tekið þátt í fyrsta leik Hauka á tímabilinu.
 
„Já það er frekar fúlt að þurfa að horfa á fyrsta leikinn ofan úr stúku. Ég var búinn að æfa vel og það var mikil spenna og eftirvænting eftir fyrsta leiknum en svona er þetta bara og ekkert sem ég get gert nema bíða.“
 
Fréttir
- Auglýsing -