spot_img
HomeFréttirHelga Rut Hallgrímsdóttir semur við Keflavík

Helga Rut Hallgrímsdóttir semur við Keflavík

 
Kvennalið Keflavíkur fékk öflugan liðstyrk í gær þegar ljóst var að Helga Rut Hallgrímsdóttir hafði ákveðið að færa sig um set frá Grindavík yfir til Keflavíkur. Helga er uppalin Grindvíkingur og hefur leikið með Grindavík allan sinn feril. www.vf.is og www.keflavik.is greina frá.
Á heimasíðu Keflavíkur segir:
Helga er fædd árið 1987 og á síðustu leiktíð með Grindavík skoraði hún að meðaltali rúm 12 stig í leik og hirti tæp 11 fráköst. Þetta er mikill fengur fyrir kvennalið Keflavíkur eftir að Bryndís Guðmundsdóttir sagði skilið við félagið fyrir nokkrum vikum síðan, en vonir standa til að Helga muni fylla rækilega í skarð Bryndísar.
 
Mynd/ Helga Rut Hallgrímsdóttir og Hermann Helgason stjórnarmaður kless’ann fyrr í dag (mynd: vf.is)
Fréttir
- Auglýsing -