HomeFréttirHelena og TCU mæta Utah í úrslitum Mountain West riðilsins

Helena og TCU mæta Utah í úrslitum Mountain West riðilsins

 
Helena Sverrisdóttir og liðsfélagar í TCU lögðu New Mexico skólann í kvöld í bandarísku háskóladeildinni og munu leika til úrslita gegn Utah skólanum sem slógu út BYU með flautukörfu en BYU varð efst að lokinni deildarkeppni riðilsins. Sigur TCU á New Mexico skólanum var nokkuð öruggur í kvöld, 61-40, og Helena stigahæst.
Helena lék í 32 mínútur í leiknum og skoraði 25 stig, tók 7 fráköst, gaf 5 stoðsendingar og var með einn stolinn bolta. Sjálfur úrslitaleikurinn fer svo fram aðra nótt.
 
Fréttir
- Auglýsing -