Haukar höfðu betur þegar systrafélögin og nýliðar Domino‘s deildarinnar, Haukar og Valur, mættust í Schenker höllinni í Hafnarfirði í kvöld. Haukar höfðu frumkvæðið mest af leik þó svo að Valsmenn hafi gert góðar atlögur að þeim.
Haukar opnuðu stigareikninginn með körfu frá Sigurði Þór Einarssyni en Valsmenn svöruðu með þriggja stiga körfu. Í stöðunni 2-3 og 4-6 voru einu skiptin sem Valsmenn leiddu leikinn en Haukar sigu hægt og bítandi fram úr og leiddu eftir leikhlutann 20-13. Vörn Hauka var nokkuð þétt á þessum kafla og Terrence Watson lét mikið fyrir sér fara í teig Haukamanna. Í leikhlutanum varði hann fjögur af sínum sex vörðu skotum og voru þau með glæsilegasta móti.
Haukar bættu í og náðu 10 stiga forskoti. Valsmenn hrukku þá í gang og á sama tíma gekk lítið upp hjá Haukum. Leikmenn Vals voru drjúgir fyrir utan þriggja stiga línuna og kveikti það allverulega í liðsmönnum þeirra þegar brotið var á Kristni Ólafssyni í þriggja stiga skoti sem rataði rétta leið. Kristinn smellti niður vítinu og átti svo tvö stig til viðbótar í næstu sókn. Flottur kafli hjá honum og Valsmönnum í heild. Rúnar Ingi Erlingsson jafnaði leikinn á vítalínunni en Haukar náðu að fara inn í hálfleikinn með fimm stiga forskot, 44-39.
Haukar lögðu upp með að halda Valsmönnum í 30 stigum í seinni hálfleik og gekk dæmi þeirra upp. Valsmenn settu niður 31 stig. Haukar tóku góðan sprett í þriðja leikhluta þegar þeir keyrðu muninn upp í 16 stig og virtist sem svo að heimamenn myndu halda áfram en svo varð ekki raunin.
Valsarar tóku aftur kipp og minnkuðu muninn jafnt og þétt. Áður en þriðja lauk voru þeir búnir að minnka muninn niður í 10 stig og héldu svo uppi teknum hætti í fjórða leikhluta og fóru næst Haukum í þremur stigum. Svavar Páll Pálsson kom inn af bekk Haukamanna og náði að kveikja aftur í heimamönnum. Hann barðist vel undir körfunni og átti stóran þátt í að keyra muninn aftur upp. Leikurinn fjaraði hægt og smátt út og var það við hæfi að maðurinn sem opnaði stigareikninginn lokaði honum. Sigurður Þór Einarsson átti loka skot leiksins þegar hann smellti niður þriggja stiga skoti um leið og leikurinn kláraðist.
Haukar unnu nokkuð sanngjarnan sigur, 85-70, og voru ívið sterkari aðilinn í kvöld þrátt fyrir flotta spretti frá gestunum.
Terrence Watson var bestur Haukamanna í kvöld með 25 stig, 17 fráköst og 6 varin skot. Davíð Páll Hermannsson átti flottan leik og sallaði niður 22 stigum og tók 8 fráköst og Emil Barja var með myndarlega þrennu þegar hann skoraði 11 stig, tók 13 fráköst, gaf 10 stoðsendingar og stal 5 boltum.
Hjá Val var Chris Woods öflugur með 27 stig og 10 fráköst og Birgir Björn Pétursson bætti við 11 stigum og tók 10 fráköst.




