HomeFréttirHaukar unnu Njarðvík

Haukar unnu Njarðvík

Njarðvík tóku á mótu Haukum í kvöld í 9. umferð Dominosdeildar kvenna í kvöld. Haukar unnu nokkuð sannfærandi 65-76 sigur. Leikurinn var jafn framan af en í seinni hálfleik sigu Haukastúlkur fram úr og Njarðvík tókst ekki að vinna upp muninn. Lele Hardy átti stórleik að vanda og voru hún og Gunnhildur Gunnardsdóttir Njarðvíkingum erfiðar í vörninni þar sem þær stálu af þeim boltanum sí og æ, og þá sérstaklega af Guðlaugu Björt Júlíusdóttur.
Það hafði mikil áhrif á Njarðvík hvað bakverðir þeirra, þær Guðlaug, Andrea Björt Ólafsdóttir og Aníta Carter komust aldrei í takt við leikinn. Sú sem var helst með lífsmarki, fyrir utan Jasmine Beverly, var Sara Dögg Margeirsdóttir.
 
Byrjunarlið Njarðvíkur: Andrea Björt Ólafsdóttir, Salbjörg Sævarsdóttir, Guðlaug Björt Júlíusdóttir, Jasmine Beverly og Erna Hákonardóttir.
 
Byrjunarli Hauka: Auður Íris Ólafsdóttir, Margrét Rósa Hálfdanardóttir, Gunnhildur Gunnarsdóttir, Lele Hardy og Jóhanna Björk Sveinsdóttir
 
Njarðvík byrjuðu leikinn betur og komust í 6-0. Það tók Hauka rúmar þrjár mínútur að skora fyrstu stig sín þegar Lele Hardy stal boltanum af Jasmine Beverly við þriggjastigalínuna og keyrði í hraðaupphlaup ein og óvölduð. Svipað hafði gerst í sókninni á undan hjá Njarðvík þegar Gunnhildur Gunnarsdóttir stal knettinum við þriggjastigalínuna en boltinn skrúfaðist hins vegar upp úr í hraðaupphlaupinu hjá henni. Haukar komust svo yfir í stöðunni 12-13. Beverly var atkvæða mikil í byrjun og skoraði fyrstu 8 stig Njarðvíkur. Íslensku stelpurnar tóku við sér eftir það og sáu um stigaskorunina fyrir Njarðvík. Leikar stöðu svo í 16-16 að lokum fyrsta leikhluta.
 
Salbjörg Sævarsdóttir refsaði Haukum fyrir að virða hana ekki sem ógn fyrir utan þriggjastigalínuna og smellti í einn þrist þar sem hún fékk galopið skot og nægan tíma til athafna og kom Njarðvík í 21-18. Lele Hardy sýndi að hún býr yfir fleiri gíra skiptingum en flestir og jók hraðan ennþá meira þegar flestir aðrir hefðu verið komnir á hraðasta skeið þegar hún keyrði framhjá Njarðvíkurvörninni og kom Haukum í 23-25. Aníta Carter fékk dæmda á sig óíþróttamannslega villu þegar að hún braut á Gunnhildi sem var að fara í sniðskot í hraðaupphlaupi eftir að hafa stolið boltanum af Anítu skömmu áður. Annars voru Gunnhildur og Hardy búnar að vera Njarðvík erfiðar þar sem að þær stálu boltanum samtals 7 sinnum af þeim í fyrri hálfleik og í öll skiptin potuðu þær boltanum úr höndunum á þeim. Haukar leiddu 27-33 í hálfleik.
 
Atkvæðamestar í hálfleik voru Jasmine Beverly með 14 stig og 5 fráköst fyrir Njarðvík og Lele Hardy með 20 stig og 6 fráköst fyrir Hauka.
 
Fyrri hluti þriðja leikhluta einkenndist af miklum barningi og fjölda klúðraðra færa. Haukar héldu áfram að bæta í forustuna hægt og bítandi. Svo kveiknaði aldeilis á Hardy og setti hún 10 stig á tveimur mínútum, þar af 2 þrista í röð. Sara Dögg Margeirsdóttir og Erna Hákonardóttir sáu þó til þess að Haukum tækist ekki að stinga af og héldu þeim innan seilingar með sitt hvorum þristnum við lok leikhlutans. Haukar 48-57 yfir fyrir síðasta leikhlutann.
 
Fjórði leikhluti fór mjög rólega af stað í stigaskorun en Njarðvík voru ekki tilbúnar að gefast upp og tókst vel að halda aftur af Haukum sóknarlega en þeim gekk ekki vel að skora sín megin. Eftir fína spilamennsku minnkaði Njarðvík muninn niður í 7 stig og leit út fyrir að leikurinn væri að snúast þeim í vil. En þá smellti Auður Íris Ólafsdóttir niður þrist fyrir Hauka og stöðvaði þar með síðustu möguleika Njarðvíkur á að komast inn í leikinn. Hardy langaði greinilega mjög mikið að rjúfa 40 stiga múrinn og gerði hún það með því að takast að stela boltanum af Andreu Björt Ólafsdóttir þegar það voru aðeins 4 sekúndur eftir af leiknum og fara í sniðskot. Haukar því með nokkuð þæginlegan 65-76 sigur.
 
 
Mynd úr safni/ Lele Hardy var óstöðvandi í kvöld
Fréttir
- Auglýsing -