Fjölnir fékk Hauka í heimsókn í dag í 12. umferð Dominosdeildar kvenna. Haukar sigruðu nokkuð þægilega 58-72 þar sem að Fjölnir réð ekkert við Siarre Evans sem átti stórleik og skoraði 33 stig, tók 22 fráköst, þar af 9 sóknarfráköst sem eru tveimur fleiri sóknarfráköst en allt Fjölnisliðið náði, og átti 6 stolna bolta. Hún fór meðal annars þrisvar sinnum upp völlinn endilangann og lagði boltan ofan í körfuna á meðan Fjölnir kom engum vörnum við. Britney Jones var Haukum erfið og fiskaði á þær 15 af 22 villum þeirra. Hún fór 21 sinni á línuna og setti niður 20 af þeim skotum. Henni gekk hins vegar ekki eins vel í opnum leik og skoraði aðeins fjórar körfur.
Byrjunarlið Fjölnis: Heiðrún Harpa Ríkharðsdóttir, Fanney Lind Guðmundsdóttir, Bergdís Ragnarsdóttir, Britney Jones og Eva María Emilsdóttir.
Byrjunarlið Hauka: Margrét Rósa Hálfdanardóttir, Gunnhildur Gunnarsdóttir, María Lind Sigurðardóttir, Jóhanna Björk Sveinsdóttir og Siarre Evans.
Fyrsti leikhlutinn einkenndist af miklum mistökum og mörgum töpuðum boltum hjá báðum liðum. Staðan var því einungis 5-4 eftir sex mínútna leik og þarf af kom helmingurinn af vítalínunni. Þá kveiknaði í Dagbjörtu Samúelsdóttur og skoraði hún 8 stig á 1 mínútu og 40 sek., þar af tvo þrista og kom Haukum 9-12 yfir. Britney Jones setti svo niður tvo víti undir lok leikhllutans og lagaði stöðuna í 11-12.
Liðin skiptust á að leiða í byrjun annars leikhluta en svo braut Birna Eiríksdóttir á Siarre Evans sem skoraði og bætti við vítinu. Eftir það tóku Haukar öll völdin á vellinum og yfirspiluðu Fjölni 22-9 það sem eftir lifði fyrri hálfleiks og leiddu örugglega 24-36 í hálfleik.
Haukar hófu þriðja leikhlutann á 10-0 kafla þar sem Siarre Evans átti tvo þrista og komust 22 stigum yfir. Neyddist þá Ágúst Jensson til að taka leikhlé og lesa yfir sínum leikmönnum. Það bar tilætlaðan árangur og Fjölnir komust í gírinn, stöðvuðu sókn Hauka og yfirspiluðu þær 15-6. Munurinn kominn niður í 13 stig og Fjölnir komnar aftur inn í leikinn.
Haukastúlkur kvöddu fljótt niður vonarneista Fjölnis með því að komast 18 stigum yfir eftir fyrstu tvær mínútur fjórða leikhluta. Leikurinn var þar með orðinn þeirra. Fjölnisstúlkur gáfust þó ekki upp og tókst að minnka muninn niður í 8 stig þegar 2:15 voru til leiks en nær komust þær ekki. Margrét Rósa Hálfdanardóttir kláraði leikinn fyrir Hauka með tveimur snöggum sniðskotum og Siarre Evans rak svo seinasta smiðshöggið með seinustu körfu leiksins.
Stigahæstar hjá Fjölni: Britney Jones 28 stig/5 fráköst, Heiðrún Harpa Ríkharðsdóttir 9 stig, Fanney Lind Guðmundsdóttir 7 stig/9 fráköst og Bergdís Ragnarsdóttir með 6 stig/8 fráköst/4 varin skot.
Stigahæstar hjá Haukum: Siarre Evans 33 stig/22 fráköst/6 stolnir boltar, Margrét Rósa Hálfdanardóttir 16 stig/6 stoðsendingar, Dagbjört Samúelsdóttir 8 stig og Gunnhildur Gunnarsdóttir 7 stig/5 fráköst/4 stoðsendingar/5 stolnir boltar.
Leikmaður leiksins: Siarre Evans
Mynd/ Heiða
Umfjöllun/ K. Bergmann




